Þjónusta og framlína
Fyrir starfsfólk í daglegum samskiptum við gesti
Leiðin er fyrir móttöku, þrif, morgunverð, veitingar og vaktstjóra. Farið er yfir þjónustu og samskipti, en rauði þráðurinn er annar en í hefðbundnum þjónustunámskeiðum: hvernig hvert starf hefur áhrif á gestinn og á afkomu vinnustaðarins.
Þegar starfsfólk sér samhengið verður auðveldara að sjá áhrif daglegra ákvarðana. Ekki vegna þess að beðið sé um aðhald, heldur vegna þess að fólk skilur hvað liggur að baki.
Röðin
Gestaþjónusta, samskipti og rekstrarvitund er inngangur leiðarinnar. Hin námskeiðin dýpka einstaka þætti og má taka í hvaða röð sem er.
Námskeiðin
- Gestaþjónusta, samskipti og rekstrarvitund
- Rekstrarvitund í daglegum störfum
- Erfið samskipti, kvartanir og álagsstundir
- Sala og viðbótarsala í þjónustu
Að taka leiðina í heild
Námskeiðin eru stutt og aðlöguð að vaktafyrirkomulagi. Þau má halda í lotum yfir nokkrar vikur til að draga úr röskun á daglegum rekstri.
Mælt er með að taka tvö til þrjú námskeið saman. Fjöldi þátttakenda og fyrirkomulag eru ákveðin í samráði við vinnustaðinn.