Sala og viðbótarsala í þjónustu
Gestur sem veit ekki hvað er í boði getur ekki beðið um það.
Fyrir hverja
Móttökufólk, bókunardeildir, veitingafólk og aðrir sem eru í beinum samskiptum við gesti.
Um námskeiðið
Flestir gestir vita ekki hvað er í boði. Þeir vita ekki að hægt sé að uppfæra herbergið, að veitingastaðurinn taki við pöntunum, eða að hægt sé að fá síðbúna brottför. Þegar enginn segir þeim það tapa báðir.
Námskeiðið snýst um að þekkja það sem er í boði, lesa aðstæður og bjóða á réttum tíma með þeim hætti að gesturinn upplifi það sem þjónustu. Unnið er með raunveruleg tækifæri úr eigin rekstri.
Farið er yfir
- Munurinn á þjónustu og þrýstingi
- Að þekkja það sem er í boði og verðleggja það rétt í huganum
- Hvenær í samtalinu á að nefna hvað
- Uppfærslur, veitingar, afþreying og síðbúin brottför
- Orðalag sem virkar og orðalag sem fælir frá
- Að taka nei án þess að það verði vandræðalegt
Að námskeiði loknu geta þátttakendur
- bent á viðbótarþjónustu án þess að ganga of langt
- þekkt tækifærin sem eru í eigin starfi
- valið rétta tímasetningu í samtali við gest
- séð hvað viðbótarsala skilar vinnustaðnum
Fyrirkomulag
3 klst.
Fjöldi þátttakenda
Allt að 14 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.
Þátttakendur fá
Handbók með orðalagi og dæmum, gátlisti fyrir tækifæri og þátttökuskírteini.
Verð
Frá 350.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.
Kennsla og fyrirkomulag
Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.