Verðstýring og tekjustjórnun

Lítil breyting á verði hefur oft meiri áhrif en flestar aðrar ákvarðanir.

Fyrir hverja

Eigendur, hótel- og gistihússtjórar, sölu- og markaðsfólk, móttöku- og bókunarstjórar og þeir sem ákveða verð, afslætti eða skilmála.

Um námskeiðið

Lítil breyting á verði hefur meiri áhrif á afkomuna en flestar aðrar ákvarðanir sem teknar eru í rekstrinum. Samt er verðskráin oft byggð á því sem var gert í fyrra.

Hér er farið í verðstýringu sem sérgrein: hvernig verð er byggt upp yfir árið, hvenær afsláttur borgar sig, hvað situr raunverulega eftir af bókun eftir dreifileiðum og hvernig skilmálar eru notaðir til að stýra eftirspurn. Unnið er með raundæmi þar sem þátttakendur taka verðákvarðanir og sjá áhrifin.

Farið er yfir

  • Uppbygging verðskrár yfir árið: háönn, jaðartímabil og lágönn
  • Afslættir, hópar og fyrirtækjaverð: hvenær þeir skila sér og hvenær ekki
  • Dreifileiðir og þóknanir: hvað situr eftir af hverri bókun
  • Beinar bókanir og hvað þær eru raunverulega virði
  • Skilmálar sem stýritæki: lágmarksdvöl, afbókanir og fyrirframgreiðsla
  • Að lesa eftirspurn og bregðast við í tæka tíð

Að námskeiði loknu geta þátttakendur

  • byggt upp verðskrá sem tekur mið af árstíðum og eftirspurn
  • reiknað raunverulega framlegð á bókun eftir dreifileiðum
  • metið hvenær afsláttur skilar sér og hvenær hann kostar meira en hann gefur
  • notað skilmála markvisst til að stýra nýtingu og tekjum

Fyrirkomulag
Grunnur 3 klst. · Heill dagur, 6 klst. · Ítarútgáfa með yfirferð á eigin verðskrá

Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.

Þátttakendur fá
Glærur, framlegðardæmi eftir dreifileiðum, gátlisti fyrir verðákvarðanir og þátttökuskírteini.

Verð
Frá 550.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.

Fá tilboð

Kennsla og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.

Öll námskeið · Hafa samband