Sviðsmyndir og þolmörk í rekstri

Hvað gerist ef nýting lækkar um tíu prósent eða laun hækka um fimm?

Fyrir hverja

Eigendur, framkvæmdastjórar og stjórnendur sem þurfa að meta áhættu eða undirbúa ákvarðanir.

Um námskeiðið

Áætlun sýnir eina útkomu. Raunveruleikinn fer sjaldan nákvæmlega þangað. Sviðsmyndir sýna hvað gerist þegar forsendurnar breytast og hvar mörkin liggja.

Hér lærir þú að byggja einfaldar sviðsmyndir, finna núllpunktinn í eigin rekstri og sjá hvaða forsendur hafa mest áhrif á afkomuna. Það er líka undirbúningurinn sem banki eða fjárfestir kallar eftir.

Farið er yfir

  • Núllpunktur: hvaða nýting eða velta þarf til að standa á sléttu
  • Hvaða forsendur hafa mest áhrif á afkomuna
  • Að byggja bjartsýna, raunhæfa og varfærna sviðsmynd
  • Þolmörk: hvað þolir reksturinn áður en illa fer
  • Hvernig sviðsmyndir eru settar fram fyrir banka og stjórn

Að námskeiði loknu geta þátttakendur

  • fundið núllpunkt í eigin rekstri
  • byggt þrjár sviðsmyndir út frá eigin forsendum
  • greint hvaða þættir hafa mest áhrif á afkomuna
  • sett niðurstöður fram á skiljanlegan hátt fyrir þriðja aðila

Fyrirkomulag
Grunnur 3 klst. · Heill dagur, 6 klst.

Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.

Þátttakendur fá
Glærur, sviðsmyndalíkan í Excel, verkefni og þátttökuskírteini.

Verð
Frá 550.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.

Fá tilboð

Kennsla og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.

Öll námskeið · Hafa samband