Rekstur, arðsemi og afkoma
Hvernig lesurðu reksturinn áður en árið er búið?
Fyrir hverja
Eigendur, framkvæmdastjórar, hótel- og gistihússtjórar, millistjórnendur og lykilfólk sem hefur áhrif á tekjur, kostnað eða nýtingu.
Um námskeiðið
Ársreikningur gefur yfirsýn yfir liðið ár. Til að bregðast við breytingum í rekstri þurfa stjórnendur einnig upplýsingar meðan árið er að líða. Á þessu námskeiði lærir þú að lesa reksturinn jafnóðum og sjá hvað er að gerast meðan enn er hægt að bregðast við.
Farið er alla leiðina frá tekjum niður í afkomu: hvernig tekjur myndast, hvar kostnaður verður til og hvað situr eftir. Þátttakendur vinna með reiknilíkan þar sem sést beint hvernig breytingar á verði, nýtingu og kostnaði skila sér í afkomu.
Farið er yfir
- Hvernig tekjur myndast: nýting, meðalverð og árstíðasveiflur
- Munurinn á föstum og breytilegum kostnaði og af hverju hann skiptir máli
- Launakostnaður og aðföng á hverja selda einingu
- Framlegð og EBITDA: hvað þær tölur segja í raun
- Mánaðarleg rekstrarrýni: áætlun á móti raun og hvernig frávik eru lesin
- Lykiltölur sem stjórnandi á að fylgjast með í hverjum mánuði
Að námskeiði loknu geta þátttakendur
- lesið helstu lykiltölur rekstrarins og vitað hverjar skipta mestu
- greint hvar kostnaður myndast og hvernig hann hreyfist með umsvifum
- séð hvernig verð, nýting og kostnaður skila sér niður í afkomu
- framkvæmt mánaðarlega rekstrarrýni og greint helstu frávik frá áætlun
Fyrirkomulag
Grunnur 3–4 klst. · Heill dagur eða tveir hálfir · Ítarútgáfa í lotum með eftirfylgni
Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.
Þátttakendur fá
Glærur, lykiltöluyfirlit á einni síðu, reiknilíkan í Excel, verkefni og þátttökuskírteini.
Verð
Frá 550.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.
Kennsla og fyrirkomulag
Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.