Mönnun, launakostnaður og framleiðni
Stærsti kostnaðarliðurinn í rekstrinum er líka sá sem erfiðast er að stýra.
Fyrir hverja
Hótel- og gistihússtjórar, deildarstjórar, vaktstjórar og þeir sem bera ábyrgð á mönnun, vaktaplönum eða launakostnaði.
Um námskeiðið
Launakostnaður er yfirleitt stærsti einstaki liðurinn í þjónusturekstri. Samt er hann oft skoðaður sem föst tala í bókhaldinu frekar en eitthvað sem hægt er að stýra dag frá degi.
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig mönnun er látin fylgja eftirspurn, hvernig vaktaplön hafa áhrif á kostnað og þjónustu, og hvernig launahlutfall er lesið og notað sem stjórntæki yfir árið.
Farið er yfir
- Launahlutfall: hvað er eðlilegt og hvernig það er reiknað
- Stöðugildi, vaktaplön og hvernig mönnun fylgir eftirspurn
- Yfirvinna: hvenær hún er ódýrari en fjölgun og hvenær ekki
- Árstíðasveiflur í mönnun og hvernig þær eru undirbúnar
- Framleiðni: kostnaður á selda einingu eða gest
- Starfsmannavelta og hvað hún kostar í raun
Að námskeiði loknu geta þátttakendur
- reiknað og túlkað launahlutfall og framleiðni í eigin rekstri
- metið hvort mönnun fylgi eftirspurn eða hvort svigrúm sé til bætingar
- séð fjárhagsleg áhrif vaktaskipulags og yfirvinnu
- undirbúið mönnun fyrir árstíðasveiflur með kostnaðinn í huga
Fyrirkomulag
Heill dagur, 8 klst. · Einnig í boði sem hálfur dagur
Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.
Þátttakendur fá
Glærur, reiknilíkan fyrir mönnun og launahlutfall, verkefni og þátttökuskírteini.
Verð
Frá 750.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.
Kennsla og fyrirkomulag
Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.