Gervigreind fyrir stjórnendur
Hvar sparar gervigreind raunverulegan tíma í stjórnun?
Fyrir hverja
Stjórnendur og millistjórnendur sem vilja nýta gervigreind í greiningu, skjalagerð og undirbúningi ákvarðana.
Um námskeiðið
Stjórnendur eyða miklum tíma í að draga saman, orða og undirbúa. Það er nákvæmlega sá hluti starfsins þar sem gervigreind gagnast mest.
Á námskeiðinu er farið yfir hagnýta notkun í stjórnunarstörfum: að vinna úr tölum og textum, útbúa samantektir og fundargögn, undirbúa erfið samtöl og prófa hugmyndir. Jafnframt er farið yfir hvar tólin eru óáreiðanleg og hvaða verkefni eiga ekki að fara þangað.
Farið er yfir
- Samantektir, fundargögn og stjórnendaskýrslur
- Að vinna úr tölum og textum og draga fram aðalatriði
- Undirbúningur erfiðra samtala og bréfa
- Að prófa hugmyndir og fá mótrök
- Hvar tólin skeika og hvernig það sést
- Verklag og mörk á vinnustaðnum
Að námskeiði loknu geta þátttakendur
- nýtt gervigreind í algengum stjórnunarverkefnum
- nýtt verkfærin til að flýta undirbúningi samantekta og fundargagna
- metið hvenær niðurstaða er áreiðanleg og hvenær ekki
- sett einföld viðmið um notkun á sínum vinnustað
Fyrirkomulag
Heill dagur, 6 klst. · Einnig sem tvær hálfsdagslotur
Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.
Þátttakendur fá
Glærur, dæmasafn fyrir stjórnendur, verklagsviðmið og þátttökuskírteini.
Verð
Frá 450.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.
Kennsla og fyrirkomulag
Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.