Gervigreind í daglegum störfum
Hagnýtur grunnur fyrir alla, með skýrum mörkum um hvað má aldrei setja inn.
Fyrir hverja
Allt starfsfólk, óháð starfi eða tæknikunnáttu. Engin undirstaða nauðsynleg.
Um námskeiðið
Gervigreindartól eru komin inn á flesta vinnustaði, oft án þess að nokkur hafi tekið ákvörðun um það. Sumir nota þau daglega, aðrir hafa aldrei opnað þau, og fáir vita hvar mörkin liggja.
Á námskeiðinu færðu hagnýtan grunn: hvað tólin gera í raun, hvernig þau eru notuð í daglegum verkefnum og hvar þau eiga ekki heima. Persónuvernd og meðferð trúnaðargagna eru fastur hluti námskeiðsins.
Farið er yfir
- Hvað gervigreindartól gera og hvað þau gera ekki
- Hagnýt notkun í daglegum verkefnum: texti, samantekt og hugmyndavinna
- Hvernig góð fyrirmæli eru sett fram
- Persónuvernd: hvaða upplýsingar mega aldrei fara inn
- Trúnaðargögn, kennitölur og upplýsingar um gesti eða samstarfsfólk
- Að sannreyna niðurstöður og treysta þeim ekki blint
Að námskeiði loknu geta þátttakendur
- notað gervigreindartól í algengum daglegum verkefnum
- sett fram skýr fyrirmæli og fengið nothæfa niðurstöðu
- þekkt hvaða upplýsingar mega aldrei fara í slík tól
- metið hvenær niðurstöðu þarf að sannreyna
Fyrirkomulag
3 klst.
Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.
Þátttakendur fá
Glærur, gátlisti um persónuvernd, dæmasafn og þátttökuskírteini.
Verð
Frá 450.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.
Kennsla og fyrirkomulag
Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.