Fjármálalæsi fyrir stjórnendur

Ársreikningurinn á ekki að vera skjal sem einhver annar skilur.

Fyrir hverja

Stjórnendur, millistjórnendur og stjórnarfólk sem hefur ekki fjármálabakgrunn en þarf að taka ákvarðanir byggðar á tölum.

Um námskeiðið

Margir góðir stjórnendur kinka kolli á fundum þar sem farið er yfir ársreikning og vona að enginn spyrji. Það er óþarft. Undirstöðurnar eru ekki flóknar þegar þær eru útskýrðar á mannamáli.

Á námskeiðinu er farið yfir rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi án fagmáls, með dæmum úr raunverulegum rekstri. Markmiðið er að þú getir lesið reikninginn, spurt réttu spurninganna og vitað hvenær eitthvað lítur undarlega út.

Farið er yfir

  • Rekstrarreikningur: hvað eru tekjur, kostnaður og afkoma
  • Efnahagsreikningur: eignir, skuldir og eigið fé
  • Sjóðstreymi og af hverju það er ekki það sama og hagnaður
  • Helstu kennitölur og hvað þær segja
  • Hvað á að spyrja um þegar tölurnar eru kynntar
  • Algeng mistök í lestri reikninga

Að námskeiði loknu geta þátttakendur

  • lesið rekstrar- og efnahagsreikning og útskýrt meginlínurnar
  • greint muninn á hagnaði og handbæru fé
  • reiknað og túlkað helstu kennitölur
  • spurt markvissra spurninga þegar fjárhagsupplýsingar eru kynntar

Fyrirkomulag
Heill dagur, 6 klst. · Einnig sem tvær hálfsdagslotur

Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.

Þátttakendur fá
Glærur, orðskýringar yfir helstu hugtök, verkefni og þátttökuskírteini.

Verð
Frá 550.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.

Fá tilboð

Kennsla og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.

Öll námskeið · Hafa samband