Excel fyrir rekstur

Rekstrarnámskeið þar sem verkfærið er Excel.

Fyrir hverja

Stjórnendur, bókhalds- og skrifstofufólk og allir sem vinna með tölur í rekstri.

Um námskeiðið

Hér er kennt að byggja það sem þú þarft raunverulega: áætlun sem heldur, líkan sem svarar spurningum og framsetningu sem aðrir skilja.

Unnið er með raunveruleg rekstrarverkefni frá byrjun til enda. Þátttakendur fara út með skjöl sem þeir geta notað áfram í eigin rekstri.

Farið er yfir

  • Uppbygging skjals sem heldur: forsendur, útreikningar og niðurstöður aðskilin
  • Formúlur sem skipta máli í rekstri
  • Að byggja einfalda rekstrar- og sjóðstreymisáætlun
  • Sviðsmyndir og næmni: að breyta einni forsendu og sjá áhrifin
  • Framsetning talna svo aðrir skilji þær
  • Algeng mistök sem valda villum í skjölum

Að námskeiði loknu geta þátttakendur

  • byggt rekstrarlíkan sem er læsilegt og villulítið
  • sett upp áætlun með aðskildum forsendum og útreikningum
  • búið til sviðsmyndir og séð áhrif breytinga
  • sett tölur fram á skýran hátt fyrir stjórnendur eða banka

Fyrirkomulag
Heill dagur, 6 klst. · Einnig sem tvær hálfsdagslotur

Fjöldi þátttakenda
Allt að 8 manns í þessu verði. Stærri hópar eftir samkomulagi.

Þátttakendur fá
Sniðmát í Excel, verkefni, gátlisti og þátttökuskírteini.

Verð
Frá 450.000 kr. fyrir hópinn. Lokaverð ræðst af fjölda þátttakenda og sérsniðningu. Lengri og ítarlegri útfærslur eru í boði samkvæmt tilboði. Nánari verðupplýsingar koma fram í tilboði.

Fá tilboð

Kennsla og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundi. Þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Hægt er að sameina námskeið í dagskrá fyrir vinnustaðinn.

Öll námskeið · Hafa samband